mandag den 15. september 2008

Allt það fína í Kína!

Já bara allt fínt að frétta. Helgin því miður búin ;o/
Það var æðislegt að vera í fríi og veðrið var líka yndislegt. Strákarnir eru búnir að vera úti að leika alla helgina og Ásbjörn er orðinn voða duglegur að leika við einn bekkjabróðir sinn sem býr í næstu blokk við okkur. Það er voða sport hjá þeim að reyða hvorn annan á hjólunum sínum.
Á laugardagskvöldið síðasta hittumst við nokkrar stelpur og spiluðum heima hjá Dísu, það var æðislega gaman... langt síðan ég spilaði síðast. Strákarnir fengu Auði "barnapíu" til að passa sig og voru alveg í skýjunum yfir því.
Á sunnudaginn tók ég garðinn minn í gegn... ó, já.... ÞAÐ HAFÐIST. Og hann stækkaði um helming. Það er nefnilega einhver klifurjurt sem vex þarna og hún var búin að dreyfa ansi mikið úr sér. Þvílíkur léttir að vera búin að þessu :o) Bara verst hvað hann er samt ljótur :o/ Verð að gera eitthvað í því næsta vor.
Brynjar skemmti sér konunglega í Árhús og kom heim með nokkrar harðsperrur ;o)
Hann sansaði hjólin okkar áðan, skipti m.a. um dekk á mínu hjóli og svo kíktum við í smá hjólatúr, vorum reyndar engan veginn að nenna því, erum alveg að drepast úr leti sem við erum að reyna að laga! Stefnum á að fara reglulega í hjólatúr.

Mér finnst svo hrikalega gaman að gera svona myndablogg... ég var bara smá stund að setja þessar myndir inn en ekki fleiri klukkutíma eins og síðast! Hehemmm... já algjör tölvunörd.

Ég setti inn sumarmyndir 2008, þær enduðu reyndar frekar neðarlega í albúminu... kann ekki að laga það.


Ingi Pingi á Glæsi og mammsan á Ofsa.
Það eru svo skemmtilegar pælingar hjá Jóhanni. Við vorum að hjóla í leikskólann um daginn og þá sagði hann við mig: Ég veit hvað "fuglakúkið" heitir, það heitir fuglaskítur!!! Og hvernig komast eggin úr fuglunum? Prumpa þeir þeim út???
Svo spurði hann pabba sinn í dag hvort "karlamenn" mættu hafa hálsmen?

Ásbjörn Jakob var svo duglegur á Glæsi.

Hann elskar lítil börn og hugsar mikið til litla frænda okkar hans Aron Inga sem fæddist um daginn. Hann spurði hvort ég héldi að þau kæmu ekki að heimsækja okkur til Danmerkur, ég sagðist vona það og þá sagðist hann ætla að taka hann með sér í heimsókn til vinkonu sinnar og hélt að það yrði í lagi ef litli væri orðinn tveggja ára :o) Svo var hann líka að spá í hvort hann bursti tennurnar, eða er hann kannski tannlaus? Þarf hann þá samt að bursta?

Svo missti Ásbjörn tönn í gær og spurði hvort hann fengi pening fyrir hana. Ég sagði að kannski kæmi Tannálfurinn með pening en þá sagðist hann alveg vita að Tannálfurinn væri ekki til og það værum við sem settum pening undir koddann!!

Algjör gull :o)

En jæja... tókst að bulla smá núna :o)

Ætla að reyna koma myndaalbúmunum hér inn líka.

Bless í bili....

6 kommentarer:

Anonym sagde ...

Sæl og blessuð dúllan mín
Komin á nýja stað..til hamingju með það. Ég er er búin að frekar löt í bloggheiminum upp á síðakastið en ætla nú að fara bæta úr því.

Gaman að heyra hvað allt gengur vel hjá ykkur.

Hafið það súper gott kveðja Dísa

Anonym sagde ...

Það var bara ferlega gaman hjá okkur í spilamennskunni um daginn. Spurning um að endurtaka þetta. Ég treysti nú annars á að þú komir á kvennadaginn...held að það verði nefnilega svoldið gaman.

Sjáumst hressar
Dísa (í Sønderborg)

Björg sagde ...

hehe, þetta "Dísa sagde" og "bogga sagde" er nú bara fyndið. Aldrei of seint að fríska aðeins upp á dönskukunnáttuna ;)
Svo styttist nú í að við hittumst og þá fær maður nú að spreyta sig :)
Knús til ykkar allra :*

Anonym sagde ...

ohh þú ert svo hipp og kúl Ágústa að breyta svona um blogg síðu!!! Verst að við gátum ekki samræmt stundartöflurnar um helgina, hefði verið svooo gaman að fá ykkur! Verðum endilega að fara að plana hitting;)
knús frá Esbjerg*
Jóna prjóna

Anonym sagde ...

Jæja damen
Á ekki að fara koma með nýjar fréttir ??? Bíð spennt

Anonym sagde ...

Jú Dísa ég er alltaf á leiðinni að fara að skrifa en finn mér aldrei tíma. Svo er Binni búinn að vera að niðurhala og netið því mjög hægfara og ég hef ekki þolinmæði í svoleiðis :o/

Og já spilakvöldið var algjör snilld, er miklu meira en til í annað svoleiðis kvöld :o)